|
|
22.10.2007 19:39:50 / Jokull
Vávává er það sem ég segi um eina bestu djammhelgi sem ég hef átt í langan tíma. Við byrjuðum á miðvikudaginn sirkus og drukkum okkur hauslausa útaf því að við fréttum að við höfðum náð að redda okkur miða á Airwaves eftir að allir voru búnir að gefa upp von. Það endaði með því að við fórum svo á kaffibarinn þar sem allir voru að missa sig í dansi og opið var til 3-4(datt út um bil). Hellað skemmtilegt kvöld sem byrjaði lengstu djammhelgi sem sögur fara af! Á fimmtudaginn byrjuðum við í hafnarhúsinu á Grizzly Bear, þeir áttu ágætis moment enn samt ekkert brálæðislegt stöff. Setti samt eitt lag með þeim sem ég fílaði sem myspace lagið mitt. Síðan fórum við á Lídó þar sem rock lesbía var að öskra úr sér lungum, ekki mitt stöff og leiðinlegur staður. Föstudagurinn var ástæðan fyrir því að ég var á hátíðinni. Trentemöller og félagar voru án efa á toppnum yfir þá bestu á hátíðinni. Bassaleikararinn er náttúrulega svalasti gaur í heimi, var hann alveg að halda uppi stemmingunni bara með því að vera viðstaddur. Eftir að hafa hoppað eins og óður tók trylltur dans við á Nasa þar sem Gus Gus var að spila. Óli, Brendan.... Þetta var alltof gott!!! Svo er það laugardagurinn þar sem við fórum á helling af böndum. Enn aðeins tvö sem að standa almennilega uppúr Ultra Mega Techno Bandið Stefán og !!!. UMTBS voru helvíti hressir og fór söngvarinn alveg á kostum þegar hann skammaði hljóðmennina og sagði öllum sem að stóðu aftarlega að "fuck off". Tónleikar !!! voru rosalegir, þetta var eitthvað sem að ég bjóst bara alls ekki við! 3 trommarar og óður söngvari sem var óhræddur við að henta sér út í crowdið eða hoppa upp á hátalara til að æsa upp í liðinu. Fólkið í salnum var alveg með í stemmingunni og áður enn maður vissi af var fólkið farið að crowdsurfa og hrinta hvort öðru á dansgólfinu. Aldrei séð jafn góða stemmingu á tónleikum áður! Svo tók geðveikin á kaffibarnum við, þar sem allir voru komnir til að sjá Trentemöller snúa skífum. Það tók hálftíma "slagsmál" í röðinni til að komast inn og þegar við loksins komust inn var svo pakkað inni að maður skemmti sér næstum því betur í röðinni. Á sunnudaginn var tekin mega þynnka heima hjá Birni og svo bara heim í DETOX. Eftir fyrstu hlustun á Radiohead plötunni finnst mér Reckoner og House of Cards vera bestu lögin á plötunni, þétt plata í heildina sem að pottþétt fær pláss á litla ipodnum mínum.
»
12.10.2007 13:39:29 / Jokull
Þar sem ég flutti til Íslands 1.sept þá hef ég ekki skrifað hingað inn í lengri tíma. Þetta blogg var fyrst og fremst stofnað til þess að fólk gæti fylgst með því sem ég var að gera í Danmörku. Enn núna eftir smá tíma á Íslandi er þörfin í það að skrifa hingað inn farin að koma aftur. Þannig að ég mun halda áfram að skrifa eitthvað hingað inn. Ég vona svo innilega að fólk nenni að kíkja hingað inn eftir að hafa heimsótt síðuna núna reglulega í smá tíma og svo kemur ekkert í næstum 2 mánuði. Það er margt sem er hægt að ræða þegar það kemur að verðlagi á milli landa, enn pizzur er það sem mig langar til að ræða. Eins og allir vita sem koma hafa til Danmerkur er tyrkjapizza á hverju einasta horni og er það standard þynnkumatur fátæka námsmannsins. Á mínum local tyrkjastað kostar pizzan 600 iskr, sem er perfect! Á Dominos pizza í Danmörku kostar pizza af matseðli ca 1000 kr íslenskar(ekki megavika neitt), á Íslandi kostar sama pizzan 2500-3000 kall eða eitthvað álíka fáránlegt. Hvar í andskotanum liggur þessi verðmunur?? Ég er alveg að verða búinn að photoshopa myndir sem ég tók fyrir stuttu síðan, fresh stuff coming up. Fylgist með á flickr!!
»
26.08.2007 21:37:23 / Jokull
Í dag fór ég að kveðja Jouko þar sem hann er að byrja í animation skólanum á morgun. Hann gaf mér gjöf til þess að taka með til Íslands. Þetta er semsagt ég á málverkinu, enn finnst mér ég líkjast Shrek ansi mikið þarna hægra megin. Er ég kannski bara eins og Shrek eftir allt? Hvað finnst ykkur?
»
20.08.2007 15:13:48 / Jokull
Þegar ég er að vinna erum við oftast á fjölförnum stöðum að slá gras eða reyta arfa. Ég er alltaf að lenda í því að fólk kemur að tala við okkur og sjá hvernig við höfum það. Það virðist vera svona "regla" að gefa borgarstarfsmanni bjór. Ég og Jouko erum alltaf að fá gefins bjór frá einhverju fólki sem að labbar framhjá, frekar skondið það finnst mér! Síminn minn er farinn að sýna smá ummerki um að hafa baðað sig í klósettinu. Míkrafónninn er orðinn eitthvað skrýtinn og þarf ég að tala rosalega hátt til þess að fólk heyri í mér. Þannig að ég er svona eins og gaurinn sem er með stóra símann og talar ógeðslega hátt, frekar óþolandi! Hvað er annars að gerast með náttúruhamfarir, brýr og námur í heiminum í dag? Er þetta gróðurhúsaáhrifin sem eru að hafa svona mikil áhrif á Jörðina? Hefur Al Gore rétt fyrir sér? Mun Ísland verða undir vatni eftir 10 ár? Jahh maður spyr sig.....
»
18.08.2007 08:19:27 / Jokull
Á mánudaginn síðasta kom Patrik til Danmerkur með sinni heitelskuðu(Emilíu) og það fyrsta sem þau gerðu var að fara í Ikea og kaupa allt þar inni. Á miðvikudaginn var svo hringt í mig og ég beðinn um að koma eins fljótt og auðið er til Helsingör til þess að setja saman Ikea húsgögn. Ég hef gert margt skemmtilegra um ævina enn að setja saman Ikea húsgögn, enn gleði mín á að vera með Patriki eðalmenni gerði það bara skemmtilegt að púsla saman húsgögnum í heilan dag. Núna þessar síðustu vikur í vinnunni erum við Jouko alveg að taka þetta á næsta stig með vinnuna, núna erum við næstum því alveg hættir að vinna. Stundum mætum við bara í vinnuna og tökum svo bara bílinn heim og leggjum okkur og gerum mat og svoleiðis og skilum svo bara bílnum þegar vinnutíminn er búinn. Í gær vorum við heima hjá mér að photoshopa einhverjar myndir fyrir Jouko og drekka bjór á sama tíma. Ég ákvað að raka á mér hausinn, þar sem broddarnir voru orðnir ansi langir. Þegar ég er að klæða mig úr hettupeysunni þá flýgur síminn úr vasanum og beint ofan í klósettið, nýji síminn minn!!! Ég setti hann á ofninn og hann er í "góðu" lagi núna. Ég hélt samt að Jouko myndi kafna úr hlátri þegar ég náði í hann inni í stofu og sýndi honum símann á botninum í klósettinu. Klukkan 8 í morgun vaknaði ég við ótrúleg læti, annað eins hef ég bara aldrei heyrt. Það er verið að sandblása vegg sem er inni í portinu hjá mér, þannig að allur hávaðinn kemur beint inn til mín. Afhverju í andskotanum eru þeir að djöflast í þessu um helgar!!!!!! Svo er það aftur í dag að fara til Helsingör að hjálpa Patriki að púsla saman húsgögnum. Eins gott að hann sé með nóg af bjór og mat, annars set ég ekkert saman
»
13.08.2007 21:16:14 / Jokull
Á sunnudaginn síðasta fór á ansi skrýtið show í Kristjaníu.
Þetta var partur af festivali sem að heitir ShitTown, sem er
pönkara festival með meiru. Ég var pottþétt eini gaurinn þarna inni
með derhúfu og ekki í öllu svörtu! Á meðan gaurar á sérsmíðuðum
hjólum klesstu á hvorn annan þangað til að hjólinn gátu ekki keyrt
lengur var hardcore pönk hljómsveit að spila.Var það frekar skondið
hvernig að söngvarinn í hljómsveitinni kom alltaf með svona qoute
fyrir hvert lag eins og t.d. "They can take away our
house(ungdomshuset) but they can never take away our friendship" og
spiluðu þeir á lög borð við "Fuck the system". Ég skemmti mér
konunglega þrátt fyrir að vera engin pönkari í mér!
Ég er um þessar mundir að vinna í hardcore tani áður enn ég kem,
þannig að ef þið ætlið að eiga séns í mig kaupið ykkur 10 tíma
túrbokort í smart og þið eigi kannski möguleika 
Tékkið á Flickr til að sjá þessa geðveiki sem var í gangi á
sunnudaginn. http://www.flickr.com/photos/jokullinn
»
11.08.2007 20:25:13 / Jokull
Þessa daganna er rosalega heitt og er maður þá alltaf úti á
kvöldin að spila bolta eða bara chilla og drekka bjór. Um leið og
sólin fer niður er "spisetid" hjá Moskítóflugunum ef maður situr
kyrr er alveg pottþétt að maður verði bitinn í rugl. Ég er með
svona 10 bit á hvorum fæti og fullt annarstaðar á líkamanum, þar á
meðal eitt í andlitinu sem er rosalega pirrandi. Þegar ég segi
dönum að við séum ekki með moskítóflugur á Íslandi þá trúa þeir mér
ekki. Þetta eyðileggur svo rosalega fyrir stundum, þar sem maður
getur ekki setið einhvernstaðar eða þarf að fara heim í föt til að
hylja bert skinn. Jouko segir að þetta sé ennþá verra í Finnlandi
og sé varla hægt að vera úti stundum. Þannig að ég held að við
ættum að vera sátt að það sé ekki komnar moskítóflugur til
Íslands(ennþá).
Ég er búinn að panta miða heim, ég lendi á Íslandi laugardaginn
1.sept. Þannig að strákar takið 1.sept frá, þá þurfiði að hjálpa
mér að klára tollinn!! Pabbi ætlar að koma hingað út og vera með
mér í tæpa viku áður enn ég fer heim og ætlar hann að hann að
hjálpa mér að koma öllu draslinu heim.
Loksins loksins kem ég aftur heim í litla æðislega landið mitt
sem ég kann svo vel að meta eftir að hafa búið í útlandinu í smá
tíma!!
»
25.07.2007 18:30:21 / Jokull
Ég var alinn upp þannig að ég átti alltaf að klára matinn á
disknum mínum. Margir foreldrar ala upp börnin sín þannig að þau
þurfa að klára af disknum og hef ég mikið velt því fyrir mér hvort
það sé röng uppeldisaðferð. Þar sem mér finnst matur mjög góður og
get borðað næstum því endlaust er þetta orðið vandamál í dag. Mér
finnst ég alltaf þurfa að klára það sem er á disknum þótt svo að ég
sé í þann mund að springa. Mér finnst mjög erfitt að mæla út það
sem þarf að elda þegar maður er að elda fyrir einn, vill oft verða
of mikið og þá er erfitt að "klára ekki af disknum". Ég er kominn
með nýtt mottó, "ekki klára af disknum", sjáum hvort að það sjáist
á vigtinni 
Klárið þið af disknum ykkar?
»
24.07.2007 14:05:20 / Jokull
Hvað í andskotanum er að gerast hérna í danmörku!! Það er búið
að rigna núna í heila mánuð, næstum því stanslaust. Ég er búinn að
vera vinna úti allan þennan tíma og erum við alltaf í pollagöllum
að djöflast og lítið sem ekkert hægt að gera eftir vinnu. Svo er
maður að heyra að sumarið heima sé bara það besta sem hefur verið í
mörg ár. Þetta er allavega ógeðslega rosalega mega pirrandi!!
Ég hef tekið þá ákvörðun að ég ætla að flytja heim í smá tíma í
september, ég er að missa íbúðina sem ég er með og hef því voðalega
lítinn tilgang í því að vera hérna lengur. Ég fæ ekki neina fasta
vinnu hjá ljósmyndara og mun því koma heim í smá tíma. Ég ætla að
sækja um aðra ljósmyndaskóla úti í heimi og sjá hvort að ég komist
ekki einhverstaðar inn, danska kerfið hentar mér illa. Ég verð
háaldraður ljósmyndari loksins þegar ég er búinn með námið og mun
ég þá bara mynda fáklæddar 18 ára stelpur. Veit einhver hvort að
Birni Blöndal vanti nema?
Djöfull vona ég líka að Verslunarmannahelgin verði ömurleg fyrir
ykkur sem eruð búin að plana eitthvað skemmtilegt!! Það er kominn
tími á að veðurguðinn hætti að leggja mig í einelti og gefi ykkur
smá taste af því sem er í gangi hérna!!
Ég legg miklar vonir á ágústmánuð!!!!
»
06.07.2007 18:36:25 / Jokull
*Biturleiki byrjar* Ég er svo glaður að ég sé ekki á Hróarskeldu
í ár, það er í minnsta lagi 30cm vatnslag yfir öllu svæðinu. Þetta
er blautasta hátið ever!*Biturleiki endar* Síðustu tvær vikur er
meira og minna búið að rigna í Kaupmannahöfn. Ég og Jouko erum
alltaf í pollargöllum í vinnunni að slá gras og sitja inn í bíl að
drekka kaffi. Ég vona að þetta lagist í næstu viku!
Ég hef í gegnum tíðina hef ég mikið flett í gegnum Morgunblaðið
til að skoða myndir(auðvitað líka fréttir). Frá því ég byrjaði að
taka myndir hefur það alltaf verið eitt af markmiðum mínum að fá
birta mynd í Morgunblaðinu.
Á þriðjudaginn síðasta, þegar ég var á leið heim úr vinnu, var
hringt í mig frá Morgunblaðinu og ég beðinn um að taka mynd sem
fyrst af íslenskum fiskbúðar eiganda hér í Kaupmannahöfn.
Blaðamaðurinn sem ég talaði við sagði mér að myndin myndi koma á
baksíðu morgunblaðsins morguninn eftir. Ég stökk beint í málið og
fór heim sækja vélina og beint í málið. Fiskbúðin heitir Boutique
Fisk og er staðsett í Frederiksberg. Eftir að hafa tekið myndir af
þeim gáfu þau mér túnfisk sem var maríneraður í engifer, svaðalega
gott!
Næst er það forsíðan!

»
15.06.2007 18:54:52 / Jokull
Ég verð að fara að blogga oftar, ég er alltof seinn að skrifa
eitthvað hérna inn. Loksins þegar ég skrifa það þá er það orðið
"old news". Anyways, síðustu helgi buðum við í partý hérna heima
hjá okkur. Birna og Baldi voru hérna í heimsókn hjá okkur og buðu
þau líka fólki sem að þau þekktu. Ég fékk rosalega skemmtilega
hugmynd, hún var að setja upp myndavélina á þrífót og hafa svona
"Photobooth". Þar sem eina sem þarf að gera er að ýta á takkann og
brosa. Til að byrja með var fólk ekki að taka nógu vel í þessa
hugmynd, enn eftir nokkra bjór var fólk farið að fækka fötum og
allir tjúllaði fyrir framan vélina.
Þegar farið var í bæinn var planið að fara á Skarv, við tékkuðum
á þeim stað og eins og vill oft vera hérna í dk þá kostaði handlegg
þangað inn. Þá kom einhver með þá hugmynd að fara í Sleven, kaupa
bjór, og fara í garðinn að spila kubb. Þar vorum við svo alla
nóttina að spila þangað til að sólin kom upp og flestir voru
sofnaðir.
Daginn eftir var svo rosalega gott veður að það var enginn tími
til að vera þunnur. Við vöknuðum snemma(klukkan 12) og fórum á
ströndina. Ég náði að plata Gyðu til að stökkva fram af bryggjunni
og alles! Þynnkan hvarf eins og dögg fyrir sólu um leið og maður
snerti kaldan sjóinn.
Svona var stemmingin á liðinu!
»
05.06.2007 21:56:09 / Jokull
Í dag var frídagur í Danmörku, einhver danskur frídagur sem ég
veit ekki alveg hvað er. Ég og Jouko hittumst um hádegið úti á
Amager og fórum út á Refshaleøen, á stað sem gaurinn í veiðibúðinni
benti okkur á. Þar fundum við rosalega flottan stað þar sem
við stóðum undir risastórri vindmyllu og með útsýni á 20 aðrar
vindmyllur úti í sjónum og brúnna yfir til Svíþjóðar.
Við tókum með okkur einnota grill og pylsur. Eftir að hafa kastað
svona 100x og ekki fiskað neitt, fengum við okkur pylsur á
steinunum við sjóinn. Sólin var rosalega sterk í dag og auðvitað
gleymdum við að taka með okkur sólarvörn. Það endaði þannig að ég
varð að fara í hettupeysu, útaf því að ég er alveg gjörsamlega
brenndur í mauk á bakinu, öxlunum og skallanum. Eftir að hafa veitt
í smá tíma í hettupeysunni var okkur orðið alltof heitt og allt
drykkjarhæft búið. Þannig að við hjóluðum tilbaka og keyptum okkur
eitthvað að drekka á leiðinni.
Þegar ég kom heim var Gyða búinn í vinnunni og vildi fara út í garð
að spila Kubb, sem er svona kubbaleikur sem maður spilar í
garðinum. Ferlega skemmtilegur leikur sem virkar þannig að maður
kastar svona litlu kústskafti og átt að reyna að fella kubba hjá
hinum. Ég spilaði einn á móti Gyðu og Birnu, auðvitað vann ég í
bæði skiptin. Skemmtilegur leikur sem verður spilaður mikið í
sumar.
Læt tvær myndir fylgja af okkur bakkabræðrum. Vonandi fiskum við
eitthvað næst!!

»
30.05.2007 15:04:39 / Jokull
Á fimmtudaginn kom ég heim úr vinnu, alveg búinn á því, settist
í sófann og horfði á sjónvarpið. Gyða sagðist ætla að fara að sækja
hjólið sitt í vinnuna afþví að hún hefði gleymt því þar. Þegar hún
kemur heim aftur er hún með Patrik og Emilíu með sér. Þetta var
fyrsta skiptið þar sem mér var komið svona rosalega á óvart, ég
fraus allur og náði mér ekkert fyrr enn eftir þriðja bjór. Ég og
Patrik forum strax í mission í Fakta að kaupa bjór og svo eftir að
hafa drukkið vel af bjór var haldið af stað í Tivolí.
Ég hef farið oft í Tivolíið hérna í Köben, enn sjaldan skemmt mér
jafn vel og þarna. Eftir að hafa farið í nokkur tæki fundum við
einhvern þýskan bar sem að stór bjór var 1l. auðvitað keyptum við
bakkabræður okkur þannig. Tókst mér svo að brjóta glasið þegar ég
var að sýna Patriki “hvernig á” að skála.
Á föstudagskvöldið forum við í ammlisveislu hjá Kristínu sem að býr
á Íslandsbryggju. Við tókum vodkaflöskuna sem að þau keyptu í
fríhöfninni með í partýið. Svo við hraðspólum hratt yfir það og
förum yfir punktanna sem ég heyrði daginn eftir. Sagði við stelpu
að mér fyndist kærastinn hennar vera hommalegur, Drakk dry
vodka(geri það aldrei), breikdansaði í lobbíinu á fimm stjörnu
hóteli.
Svo voru auðvitað teknar myndir áður enn gengið fór í bæinn.
»
30.04.2007 12:58:15 / Jokull
Í dag langar mig að kynna ykkur fyrir gaur sem ég var að vinna
með í síðustu viku. Hann heitir James Williams Junior og er frá
Sierra Leone. Hann flutti hingað til Danmerkur fyrir 7 árum og er
hæstánægður með það að búa hérna. Hann vinnur við uppvask í matsal
lyfjafyrirtækis, Novo Nordisk, hér í Danmörku. Hann elskar vinnuna
sína og tekur henni rosalega alvarlega. Móðurmál hans er Kríó, sem
er svona bjöguð afrísku enska einhver. Voðalega fyndið að heyra
hann tala í símann. Hann hlustar á svona reggí tónlist þar sem
sungið er á kríó og notar hann bara segulbandsspólur.
Ég tók myndavélina með í vinnuna einn daginn og fékk hann til að
pósa fyrir mig. Honum fannst ferlega skemmtilegt að láta taka
myndir af sér og held ég að hann verði mjög ánægður með myndirnar
sem ég sendi honum. Gaman að vinna með fólki sem er hægt að spyrja
milljón spurninga um heimalandið þeirra, án þess að það verði
eitthvað pirrað á því.
Junior
»
26.04.2007 23:44:04 / Jokull
Í dag tók ég mér frí í vinnunni til þess að njóta veðursins. Ég
ákvað að nýta tækifærið og njóta þess að sofa út. Ég vaknaði
klukkan 11 í morgun og byrjaði á því að fara út að hlaupa í
garðinum. Í þetta skiptið fór ég tvo hringi og ég hélt að ég myndi
æla þegar ég var búinn.
Rétt eftir hádegi hitti ég Jouko og við fylltum upp töskurnar
okkar af bjór og nesti og hjóluðum bara eitthvað út í góða veðrið.
Við hjóluðu alveg lengst út á Amager þar sem er svona skógarsvæði
og bryggja sem að heitir Kalvebodsbrygge. Við fundum okkur mjög
nice stað þarna við bryggjuna þar sem við drukkum bjór og dýfðum
fótunum í sjóinn. Eftir að hafa chillað þar í ca 2 tíma fórum við
að hjóla rólega tilbaka, þá fundum við rosalega fallegan skóg sem
við hjóluðum í gegnum. Helvíti nice staður þar sem ég verð að fara
að taka myndir fljótlega. Þegar ég loksins komst heim, eftir hafa
hjólað í svona 40 mín heim, var Gyðan mín með pizzu og allt
tilheyrandi.
Gyða var með vinkonum sínum í sólinni í allann dag og er hún
alveg eins og karfi. Það á eftir að svíða á morgun. Ég er frekar
rjóður á líkamanum, enn held ég verði góður á morgun. Sjáum til.
Ferlega gaman að sumarið sé að byrja, ég er alveg ready í að eyða
sumrinu hérna!
Gyða er að fara til Íslands 15 júlí og verður í 2 vikur heima.
Þá er alveg tilvalið að allt gengið komi hingað út, þá er ég með
alla íbúðina og hægt að koma fyrir endalausu fólki hérna ef að
viljinn er fyrir hendi. Hvað segja þið drengir um það!?
Anyways, ég bjó til svona voðalega sniðugt flickr. Þar er ég
búinn að setja inn nokkrar myndir sem ég hef verið að skanna.
Þangað koma til með að koma flestar myndir sem ég skanna. Fylgist
með....
http://www.flickr.com/photos/jokullinn
»
Síður: 1 2
|
|